Ég þoli
ekki..................
...fólk sem gefur í þegar ég er að reyna að
skipta um akgrein...
...ókurteisa krakkagemlinga...
...ókurteist fólk yfir höfuð...
...að þvotturinn minn hengir sig ekki upp
sjálfur...
...þegar ég fæ ekki það sem ég vil...
...þegar það er bara til goslaust kók í ískápnum
mínum...
...þegar ég er geðveikt þreytt, og leggst upp í
rúm og er þá bara allt í einu ekkert þreytt lengur...
...þegar ég er veit að ég hef rétt fyrir mér og
aðrir vilja ekki hlusta á mig...
...fólk sem tuðar...
...fólk sem situr heima hjá sér og vælir yfir
hlutunum í staðinn fyrir að gera eitthvað í þeim...
Ég dýrka...
...að geta legið í rúminu mínu og horft á
stjörnurnar...
...að fara í göngutúr og koma við á tjörninni og
gefa öndunum brauð...
...hvað litlir hlutir geta fengið mann til að
brosa jafnvel meira en þeir stóru...
...þegar einhver kemur mér á óvart...
...fólk sem þorir að bara framkvæma það sem þeim
dettur í hug...
...aulabranda sem eru svo leim að þeir eru
fyndnir...
...að fara í sund þegar það er snjór og ískalt
úti...
...að láta mig dreyma um allt sem ég ætla að gera
þegar ég verð stór
...
...að sofa alveg þangað til ég vakna...
...að fá svona, váááá, allt er geðveikt frábært
og æðislegt tilfinningu, útaf engri sérstakri ástæðu...
Prinsessan á Bauninni kveður.